Stjórn Stapa hefur boðað til rafræns fundar fulltrúaráðs á morgun, fimmtudaginn 5. desember kl. 16:30. Félagið á rétt á að senda 41 fulltrúa á fundinn og hafa þeir verið boðaðir á hann.
Samkvæmt grein 3.7 í samþykktum skal stjórn sjóðsins kalla saman fulltrúaráðið tvisvar á ári, að hausti og í aðdraganda ársfundar, þar sem málefni sjóðsins eru rædd. Um hlutverk og starfsemi fulltrúaráðs að öðru leyti vísast í kjarasamninga.
Fulltrúaráðið er skipað þeim sem tilnefndir voru á ársfund sjóðsins þann 2. maí sl. sem fulltrúar þeirra aðildarfélaga, sem að sjóðnum standa.
Aðilar í fulltrúaráði frá ársfundinum eða varamenn þeirra hafa atkvæðisrétt á fulltrúaráðsfundum.
Drög að dagskrá fundarins eru eftirfarandi:
Fulltrúar fá sendan hlekk á fundinn frá Stapa.