Fulltrúaráðsfundur Stapa lífeyrissjóðs

Stjórn Stapa hefur boðað til rafræns fundar fulltrúaráðs á morgun, miðvikudaginn 4. maí kl. 16:00. Félagið á rétt á að senda 40 fulltrúa á fundinn og hafa þeir verið boðaðir á hann.

Samkvæmt grein 3.7 í samþykktum skal stjórn sjóðsins kalla saman fulltrúaráðið tvisvar á ári, að hausti og í aðdraganda ársfundar þar sem málefni sjóðsins eru rædd. Á fundinum verður m.a. farið yfir lykiltölur, breytingar á samþykktum undirbúnar fyrir ársfund og tilnefningar í stjórn sjóðsins staðfestar. Um hlutverk og starfsemi fulltrúaráðs að öðru leyti vísast í kjarasamninga.

Drög að dagskrá fundarins eru eftirfarandi:

  1. Setning fulltrúaráðsfundar
  2. Lykiltölur úr afkomu
  3. Starfskjarastefna
  4. Tillögur að samþykktarbreytingum
  5. Staðfesting tilnefninga í stjórn
  6. Önnur mál