Fulltrúaráðsfundur Stapa lífeyrissjóðs

Stjórn Stapa hefur boðað til rafræns fulltrúaráðsfundar á morgun, þriðjudaginn 30. mars, kl. 16:00. Fulltrúaráðið er samkvæmt samþykktum sjóðsins skipað þeim aðilum sem voru fulltrúar launamanna og atvinnurekenda á síðasta ársfundi sjóðsins. Félagið átti rétt á að senda 42 fulltrúa á síðasta ársfund Stapa og hafa þeir verið boðaðir á þennan fund.

Á ársfundi sjóðsins 2019 var samþykkt að stjórn sjóðsins skal kalla saman fulltrúaráðið tvisvar á ári, að hausti og í aðdraganda ársfundar, þar sem m.a. eru rædd málefni sjóðsins, breytingar á samþykktum undirbúnar og lykiltölur úr afkomu og framvindu fjárfestingarstefnu kynntar. Um hlutverk og starfsemi fulltrúaráðs að öðru leyti vísast til viðkomandi kjarasamninga hverju sinni.

Dagskrá fundarins

  1. Setning fulltrúaráðsfundar - Erla Jónsdóttir, stjórnarformaður
  2. Lykiltölur úr afkomu – Jóhann Steinar Jóhannson, framkvæmdastjóri
  3. Fjárfestingarstefna 2021 – Brynjar Þór Hreinsson, forstöðumaður eignastýringar
  4. Starfskjarastefna – Einar Ingimundarson, lögmaður
  5. Breytingar á samþykktum – Einar Ingimundarson, lögmaður
  6. Staðfesting tilnefninga í stjórn – Einar Ingimundarson, lögmaður
  7. Önnur mál