Frístundakortin - pantið með góðum fyrirvara

Athugið að gott er að panta með góðum fyrirvara. Það getur tekið allt að viku að fá kort með póstinu…
Athugið að gott er að panta með góðum fyrirvara. Það getur tekið allt að viku að fá kort með póstinum.

Sumarið 2023 býður Eining-Iðja félagsmönnum enn og aftur upp á að kaupa Útilegukortið og Veiðikortið á sérkjörum. Með því að kaupa kort hjá félaginu geta félagsmenn því sparað verulega. Kaupa þarf kortin í gegnum Orlofsvef félagsins, þá sendist pöntun til viðkomandi söluaðila sem senda kortin til félagsmanna. Kortin eru EKKI til sölu á skrifstofum félagsins.

Athugið að gott er að panta með góðum fyrirvara. Það getur tekið allt að viku að fá kort með póstinum. 

Ferðaávísun
Félagsmenn geta einnig keypt ferðaávísun á orlofsvefnum sem tryggir bestu kjörin á gistingu á hótelum og gistiheimilum um allt land. Jafnframt er hægt að nota ferðaávísunina upp í gönguferðir, samið var við Ferðafélag Íslands, Útivist og Fjallafjör og njóta félagsmenn sérkjara á völdum ferðum en einnig má nota Ferðaávísun upp í hvaða ferð sem er á vegum þessara fyrirtækja.

Sjá nánar hér