-
Opið í dag kl. 08-16
- 460 3600
- Starfsfólk
- Fyrirspurnir
- Mínar síður
- Launagreiðendur
-
Sumarið 2023 býður Eining-Iðja félagsmönnum enn og aftur upp á að kaupa Útilegukortið og Veiðikortið á sérkjörum. Með því að kaupa kort hjá félaginu geta félagsmenn því sparað verulega. Kaupa þarf kortin í gegnum Orlofsvef félagsins, þá sendist pöntun til viðkomandi söluaðila sem senda kortin til félagsmanna. Kortin verða EKKI til sölu á skrifstofum félagsins.
Athugið að gott er að panta með góðum fyrirvara. Það getur tekið allt að viku að fá kort með póstinum.
Ferðaávísun
Félagsmenn geta einnig keypt ferðaávísun á orlofsvefnum sem tryggir bestu kjörin á gistingu á hótelum og gistiheimilum um allt land. Jafnframt er hægt að nota ferðaávísunina upp í gönguferðir, samið var við Ferðafélag Íslands, Útivist og Fjallafjör og njóta félagsmenn sérkjara á völdum ferðum en einnig má nota Ferðaávísun upp í hvaða ferð sem er á vegum þessara fyrirtækja.