Frí ráðgjöf hjá SÍMEY

Hjá SÍMEY starfa reynslumiklir ráðgjafar sem bjóða upp á náms- og starfsráðgjöf fyrir fullorðna einstaklinga. Með náms- og starfsráðgjöf er hægt að skoða þá möguleika sem bjóðast þegar kemur að námi, starfsþróun eða annarri færniuppbyggingu. Ráðgjafarnir geta aðstoðað við markmiðasetningu, metið áhugasvið og verið leiðbeinandi í að finna réttu leiðirnar að settu marki. Ef þörf þykir á að efla sjálfstraustið er upplagt að leita til ráðgjafanna í SÍMEY.

Vantar þig ráðgjöf um næstu skref í haust? 

Bókaðu þinn tíma hjá helena@simey.is