Vert er að benda á þessa hádegisfræðslu á morgun, 23. nóvember, sem Landssamtök lífeyrissjóða stendur fyrir á milli kl. 12:00 og 12:45. Erindinu verður einnig streymt á fjarfundi.
Ásta Ásgeirsdóttir, hagfræðingur hjá Landssamtökum lífeyrissjóða, mun kynna vinnu við þróun lífeyrislíkans til að meta framtíðarstærð íslenska lífeyriskerfisins og hvaða ytri þættir munu helst hafa áhrif þar á.
Lífeyrislíkan - helstu áhrifaþættir
Framtíðarþróun íslenska lífeyriskerfisins er mikilvægt rannsóknarefni en eignir sjóðfélaga lífeyrissjóðanna eru nú um 200% af VLF hér á landi. Ásta mun í erindi sínu fara yfir helstu áhrifaþætti varðandi þróun næstu ára og áratuga og hvernig breytt aldurssamsetning fólks hér á landi hefur áhrif til lengri tíma.