Framkvæmdir framan við Alþýðuhúsið

Í dag hófust framkvæmdir á gangstéttinni framan við Alþýðuhúsið á Akureyri þegar byrjað var að taka upp hellulögnina. Það á að endurnýja snjóbræðslulögnina í stéttinni sem hefur verið í lamasessi í nokkur tíma.

Lögð var áhersla við verktaka að svæðið framan við innganginn verði klárað sem fyrst þannig að aðgengi að húsinu raskist sem minnst.