Dagana 19. og 20. september nk. mun Starfsgreinasambandið standa fyrir fræðsludögum fyrir starfsfólk aðildarfélaga sambandsins. Þetta verður í áttunda sinn sem SGS stendur fyrir viðburði sem þessum. Að þessu sinni fara fræðsludagarnir fram í Stykkishólmi.
Fimm starfsmenn félagsins munu fara á þessa fræðsludaga þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá.
Lokað verður á skrifstofum félagsins á Dalvík og í Fjallabyggð þessa daga.