Fræðsludagar starfsfólks aðildarfélaga SGS

Dagana 6. og 7. september nk. mun Starfsgreinasambandið standa fyrir fræðsludögum fyrir starfsfólk aðildarfélaga sambandsins. Þetta verður í sjöunda sinn sem SGS stendur fyrir viðburði sem þessum. Að þessu sinni fara fræðsludagarnir fram á Hótel Keflavík í Reykjanesbæ. 

Þrír starfsmenn félagsins munu fara á þessa fræðsludaga þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá.