Fræðsla í Vinnuskóla Akureyrar

Allt klárt fyrir fræðslu dagsins, mynd tekin í sal Síðuskóla fyrr í vikunni.
Allt klárt fyrir fræðslu dagsins, mynd tekin í sal Síðuskóla fyrr í vikunni.

Eitt af hlutverkum Vinnuskóla er markviss fræðsla á ýmsum sviðum auk forvarna. Fjölmargir koma að þeirri fræðslu, m.a. Eining-Iðja.

Í vikunni mætti félagið tvisvar á starfsstöðvar Vinnuskólans og var þar með fræðslu fyrir ungmenni í 9. bekk um réttindi og skyldur þeirra á vinnumarkaði. Í næstu viku verður félagið með eina slíka fræðslu fyrir ungmenni í 10. bekk.

Rut Pétursdóttir, þjónustufulltrúi hjá Einingu-Iðju, sér um fræðsluna að þessu sinni.