Fræðsla fyrir starfsfólk MA og VMA

Haustþing starfsfólks í framhaldsskólunum á Norðurlandi fór fram í VMA og MA sl. föstudag.

Eftir hádegi fóru fram fjölmargir fag- og starfshópafundir og mættu fulltrúar frá Einingu-Iðju á einn þeirra. Tryggvi varaformaður og Ásgrímur upplýsingafulltrúi fóru þar yfir réttindi og skyldur á vinnumarkaði fyrir félagsmenn sem starfa við ræstingar í MA og VMA.