Næsta laugardag stendur Eining-Iðja fyrir dagsferð fyrir félagsmenn út á Flateyjardal. Vert er að minna á að rúturnar munu leggja af stað frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 9.
Góð skráning er í ferðina og minnum við á að það þarf að hafa með sér nesti til dagsins, annað en grillmat sem félagið sér um.