Fjórir kynningarfundir um nýjan samning við Sveitarfélögin

18. og 19. september býður Eining-Iðja upp á fjóra kynningarfundi um nýjan kjarasamning milli Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem skrifað var undir 12. september sl. Fundirnir verða á Akureyri, Dalvík, Fjallabyggð og Grenivík.

Við hvetjum alla félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélagi til að mæta og kynna sér samninginn og auðvitað taka afstöðu með því að taka þátt í atkvæðagreiðslunni um hann. Atkvæðagreiðslan er rafræn, en henni mun ljúka kl. 9:00 þriðjudaginn 26. september 2023. Atkvæðagreiðslan er rafræn, smellið hér til að kjósa.

Mánudagur 18. september

  • Fjallabyggð kl. 17:30 á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24b
  • Dalvík kl. 20:00 í Mímisbrunni 

Þriðjudagur 19. september

  • Akureyri kl. 17:00 á 4. hæð Alþýðuhússins
  • Grenivík kl. 19:30 á Kontornum