Finnbjörn sjálfkjörinn forseti ASÍ

Finnbjörn A. Hermannsson var í dag endurkjörinn forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ) á 46. þingi þess sem nú er haldið í Reykjavík. Finnbjörn var einn í kjöri og  gegnir embætti forseta næstu tvö ár.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, var sjálfkjörinn 1. varaforseti.

Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLS, var sjálfkjörin 2. varaforseti.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var sjálfkjörin 3. varaforseti.

Ný miðstjórn kjörin

Í miðstjórn voru kjörnir 11 aðalmenn og varamenn þeirra. Tólf framboð aðalmanna bárust en Halla Gunnarsdóttir, varaformaður VR, dró framboð sitt til baka og kom því ekki til kosningar.

Miðstjórn er kjörin til tveggja ára.