Ferð fyrir eldri félagsmenn verður á morgun

Hin árlega eins dags ferð fyrir eldri Einingar-Iðjufélaga verður farin á morgun, þriðjudaginn 20. júní 2023. Um 100 félagsmenn og makar eru skráð í ferðina.

Lagt verður af stað kl. 9:00 frá Akureyri og verður ekið vestur í Húnavatnssýslur. Farið verður um fremri Blöndubrúna, Svínadal og Reykjabraut, Vatnsdalshringurinn og að Þingeyrum. Þaðan er farið um Blönduós til Kálfshamarsvíkur og áfram fyrir Skaga til Sauðárkróks og Varmahlíðar áður en haldið er yfir Öxnadalsheiði og heim.

Snæddur verður hádegisverður á Blönduósi og kaffi drukkið í Skagafirði.

Ferðin kostar kr. 5.000 á mann og verður tekið við greiðslu í rútu.