Í gær, fimmtudaginn 11. apríl, var í þriðja sinn á árinu greitt úr Félagsmannasjóði til starfsmanna sveitarfélaga á félagssvæði Einingar-Iðju. Auk starfsmanna sveitarfélaga fá einnig starfsmenn Heilsuverndar, Hólmasólar, Fjölsmiðjunar og Hamra, útilífsmiðstöðvar skátar greitt úr sjóðnum. Að þessu sinni fengu 86 félagsmenn greiddar alls kr. 2.143.184.
1. febrúar sl. fengu 1.656 félagsmenn Einingar-Iðju greitt tæpar 95,5 milljónir króna úr sjóðnum. Aftur var greitt úr sjóðnum 27. febrúar sl. til þeirra sem voru búin að uppfæra bankaupplýsingar á Mínum síðum félagsins. Þá fengu 31 rúmar 1,3 milljónir. Með greiðslunni í gær hafa því alls 1.773 félagsmenn fengið greitt um 99 milljónir úr Félagsmannasjóði á árinu.
Þegar greitt var úr sjóðnum þann 1. febrúar sl. vantaði bankaupplýsingar hjá 305 félagsmönnum eða þá að þær eru rangt skráðar og á því átti eftir að greiða um 5,8 milljónir úr sjóðnum. Hæsta einstaka upphæðin var þá rúmar 100.000 krónur. Núna er því staðan sú að enn eiga 188 félagsmenn eftir að fá greitt úr sjóðnum þannig að ef þú ert að vinna á þessum vinnustöðum en fékkst ekki greiðslu frá félaginu í febrúar eða í gær þá hvetjum við þig til að fara inn á Mínar síður félagsins og skrá inn þessar upplýsingar sem og síma og netfang.
Eru þínar upplýsingar réttar?
Skráðu þig inn á Mínar síður félagsins, með rafrænum skilríkjum, þar getur þú kannað hvort við séum með réttar upplýsingar um þig og lagfært ef þörf krefur. Ef þú kemst ekki inn á síðuna eða hefur einhverjar spurningar í sambandi við Félagsmannasjóðinn þá máttu endilega senda tölvupóst á rosfrid@ein.is
Reiknað er með að greiða aftur úr Félagsmannasjóði í byrjun nóvember 2024, þ.e. .til þeirra sem skila inn umbeðnum upplýsingum.
Í grein 13.8 í samningi SGS við sveitarfélögin er fjallað um Félagsmannasjóð, þar stendur m.a.: