Félagsmannasjóður - Aftur var greitt út í gær

Í gær, miðvikudaginn 15. febrúar, var aftur greitt úr Félagsmannasjóði til þeirra félagsmanna sem voru búnir að uppfæra bankaupplýsingar á Mínum síðum félagins. Forsenda þess að hægt sé að greiða úr sjóðnum er að Eining-Iðja hafi kennitölu, bankaupplýsingar, síma og netfang félagsmanna sem eiga rétt á að fá greiðslu úr sjóðnum. Í gær fengu 103 félagsmenn greitt úr sjóðnum alls um 4,5 milljónir króna.

Þegar greitt var úr sjóðnum þann 1. febrúar sl. vantaði slíkar upplýsingar hjá um 350 félagsmönnum. Því var ákveðið að greiða aftur úr sjóðnum 15. febrúar og 2. mars til þeirra sem skila inn umbeðnum upplýsingum.

1. febrúar sl. var greitt úr Félagsmannasjóði samtals rúmlega 83 milljónir króna til 1.576 félagsmanna Einingar-Iðju. Því hafa nú 1.679 félagsmenn fengið greitt um kr. 87,5 milljónir á þessu ári. Athugið að ekki hefur verið tekin staðgreiðsla af upphæðinni sem greidd er út til félagsmanna. Því þarf að greiða skatta af þessum greiðslum eftir á.

Hverjir eiga rétt á að fá greitt úr Félagsmannasjóði?
Félagsmenn innan Starfsgreinasambandsins, þar á meðal Einingar-Iðju, sem starfa hjá sveitarfélögum fá í samræmi við síðustu kjarasamninga greitt 1,5% af launum sínum í Félagsmannasjóð. Auk sveitarfélaga greiða einnig í sjóðinn Heilsuvernd, Hólmasól, Fjölsmiðjan og Hamrar, útilífsmiðstöð skátar.

Fyrstu tvö árin hélt Starfsgreinasambandið utan um starfsemi sjóðsins og sá um að greiða út til félagsmanna. Í september í fyrra var ákveðið að hvert félag taki yfir sjóðinn fyrir sína félagsmenn. Umfangið var of mikið fyrir SGS og tókst því ekki að leysa verkefnið með viðunandi hætti. Því sér Eining-Iðja um þessar greiðslur til sinna félagsmanna frá þeim tíma.

Eru þínar upplýsingar réttar?
Skráðu þig inn á Mínar síður félagsins, með rafrænum skilríkjum, þar getur þú kannað hvort við séum með réttar upplýsingar um þig og lagfært ef þörf krefur. Ef þú kemst ekki inn á síðuna eða hefur einhverjar spurningar í sambandi við Félagsmannasjóðinn þá máttu endilega senda tölvupóst á rosfrid@ein.is

Hvað með eldri ár?
Hvað varðar greiðslur til starfsmanna sveitarfélaga sem bárust félagsmannasjóðnum fyrir yfirtöku félagsins í byrjun ársins 2022 er vert að benda á að töluverð vinna er framundan við að gera upp við viðkomandi félagsmenn. Starfsgreinasambandið var áður með sjóðinn og þar er verið að vinna í uppgjöri á sjóðnum. Við komum til með að greiða út vegna áranna 2021 og 2020 þegar við höfum fengið þær upplýsingar. Eins og staðan er getum við því miður ekki svarað til um hvenær það verður. Beðist er velvirðingar á því. Þegar þeirri vinnu er lokið verður endanlega gert upp við félagsmenn.

Í grein 13.8 í samningi SGS við sveitarfélögin er fjallað um Félagsmannasjóð, þar stendur m.a.:

  • Launagreiðandi greiðir mánaðarlega framlag í félagsmannasjóð sem nemur 1,5% af heildarlaunum félagsmanna. Úthlutun úr sjóðnum skal fara fram 1. febrúar ár hvert samkvæmt stofnskrá sjóðsins.
  • Félagsmannasjóðurinn er stofnsettur vegna kröfu ASÍ félaga um jöfnun lífeyrisréttinda milli starfsmanna á almennum vinnumarkaði og opinberra.