Fékkst þú orlofsuppbótina?

Eining-Iðja vill minna félagsmenn á rétt sinn á að fá greidda orlofsuppbót/persónuuppbót, en það er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu í maí/júní ár hvert. Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.

  • Á almenna markaðinum er orlofsuppbótin kr. 53.000 miðað við fullt starf og átti að greiðast 1. júní sl.
  • Hjá ríkinu er orlofsuppbótin kr. 53.000 miðað við fullt starf og átti að greiðast 1 . júní sl.
  • Hjá sveitarfélögum er persónuuppbótin kr. 53.000 miðað við fullt starf og átti að greiðast 1. maí sl.

Tafla sem sýnir upphæð orlofsgreiðslu miðað við starfshlutfall og starfstíma

Sjá nánar í kjarasamningum viðkomandi aðila.