Þegar um tímamælda ákvæðisvinnu í ræstingu er að ræða gerir vinnufyrirkomulagið ráð fyrir meiri vinnuhraða en í hefðbundnu fyrirkomulagi og er því greitt hærra tímakaup. Hér er mjög mikilvægt að skrifleg verklýsing liggi fyrir sem afmarkar skýrt það sem þrífa á og með hvaða áherslum. Tekið skal fram á hvaða tíma dags svæðið skal ræst og hve oft. Ákvæðisvinnuálag fyrir tímamælda ákvæðisvinnu er 20%, þar af er 8% álag fyrir neysluhlé. Neysluhlé er því ekki tekið á vinnutíma þar sem greitt er sérstaklega fyrir það í hærri taxta.
Launaflokkur 3 með 20% álagi frá 1. maí 2017 – 30. apríl 2018
mán – fös 17.00-24.00 | mán – fös 24.00 – 08.00 og lau./sun. | |||
Dagvinna | með 33% álagi* | með 45% álagi* | Yfirvinna* | |
Byrjunarlaun, 20 ára | 1.780,86 | 2.368,54 | 2.582,24 | 3.205,60 |
1 ár, í starfsgrein | 1.792,87 | 2.384,52 | 2.599,67 | 3.227,23 |
3 ár, í starfsgrein | 1.805,07 | 2.400,74 | 2.617,35 | 3.249,19 |
5 ár, í starfsgrein | 1.817,45 | 2.417,21 | 2.635,30 | 3.271,47 |
*Fyrir vinnu umfram 40 stundir á viku skal greiða yfirvinnuálag
Tímakaup fyrir hreingerningar eða sérverkefni greiðist með 45% álagi nema vinna fari yfir 40 stundir á viku, þá greiðist yfirvinnuálag.
Vinnufyrirkomulag tímavinnu miðast við hefðbundinn vinnuhraða þar sem starfsmenn eiga rétt á 35 mínútna neysluhléi á launum fyrir fullt starf á dagvinnutíma. Vinnustundir eru því alla jafna fleiri en í tímamældri ákvæðisvinnu. Eftir kl. 17.00 reiknast 80% yfirvinnuálag á tímavinnu.
Launaflokkur 3 frá 1. maí 2017 – 30. apríl 2018
Dagvinna | Yfirvinna | |
Byrjunarlaun, 18 ára | 1.484,05 | 2.671,33 |
1 ár, í starfsgrein | 1.494,06 | 2.689,36 |
3 ár, í starfsgrein | 1.504,23 | 2.707,66 |
5 ár, í starfsgrein | 1.514,54 | 2.726,22 |
Nauðsynlegt er að tilgreint sé í ráðningasamningi ef um vaktavinnufyrirkomulag er að ræða og þarf þá starfshlutfall að vera fast skilgreint. Fyrir vinnu umfram starfshlutfall í ráðningasamningi greiðist tímakaup, dagvinna á dagvinnutímabili og yfirvinna á yfirvinnutímabili. Vinnufyrirkomulag í vaktavinnu miðast við hefðbundinn vinnuhraða eins og í tímavinnufyrirkomulagi og er neysluhlé 5 mínútur fyrir hvern unninn klukkutíma sem gerir 40 mínútur fyrir fullt starf á dag.
Starfsmenn í vaktavinnu ávinna sér 12 vetrarfrísdaga fyrir vinnu á helgidögum. Miðað er við að frídagarnir séu teknir á tímabilinu 1. október – 1. maí en einnig er hægt að semja um greiðslur í stað frídaga, 8 klst. í dagvinnu fyrir hvern frídag miðað við fullt starf.
Algengast hefur verið að vaktavinna í ræstingum sé unnin á opinberum stofnunum eins og á sjúkrahúsum.
Launaflokkur 6 frá 1. maí 2017 – 30. apríl 2018
mán – fös 17.00-24.00 | mán – fös 24.00 – 08.00 og lau./sun. | ||||
Dagvinna | Yfirvinna | með 33% álagi | með 55% álagi* | 90% álag | |
Byrjunarlaun, 18 ára | 1.514,54 | 2.726,22 | 2.014,34 | 2.347,54 | 2.877,63 |
1 ár, í starfsgrein | 1.525,01 | 2.745,07 | 2.028,27 | 2.363,77 | 2.897,53 |
3 ár, í starfsgrein | 1.535,64 | 2.764,21 | 2.042,41 | 2.380,25 | 2.917,72 |
5 ár, í starfsgrein | 1.546,43 | 2.783,62 | 2.056,75 | 2.396,96 | 2.938,21 |
*45% álag hjá öðrum en opinberum stofnunum.