Er brjálað að gera?

Vitundarvakning VIRK, sem er hluti af stærra forvarnarverkefni, hófst nýverið með auglýsingum í sjónvarpi og á vefmiðlum sem vísa á velvirk.is en vefsíðan er hugsuð sem stuðningur við starfsmenn og stjórnendur á vinnustöðum.

Markmiðið með forvarnarverkefninu er að styðja við starfsmenn og stjórnendur til að sporna við brotthvarfi af vinnumarkaði vegna heilsubrests. Velvirk síðunni er ætlað að halda utan um upplýsingar og gagnleg ráð í forvarnarskyni. Meginþema síðunnar er hvernig okkur geti liðið sem best á vinnustaðnum og náð að halda jafnvægi í lífinu almennt.