Er allt í gulu á þínum vinnustað? upptaka af fundi

VIRK, embætti landlæknis og Vinnueftirlitið buðu upp á morgunfund um heilsueflandi vinnustaði á Teams miðvikudaginn 18. september sl. undir yfirskriftinni „Er allt í gulu á þinum vinnustað?“.

Upptöku af fundinum má sjá hér.

Glærur fyrirlesara má finna hér.

Dagskrá

  • Heilsueflandi vinnustaður og geðrækt í gulum september
    • Hildur Guðný Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá embætti landlæknis
  • Höfuð herðar hné og tær - Vinnuvernd frá toppi til táar
    • Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sérfræðingur hjá VIRK, og María Jónsdóttir sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu
  • Vörður að vellíðan í vinnu
    • Sara Hlín Hálfdanardóttir, sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu

Morgunfundurinn var 15. fundurinn í fundaröð um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi VIRK, Embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.

Markmið Heilsueflandi vinnustaðar er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.