VIRK, embætti landlæknis og Vinnueftirlit ríkisins bjóða upp á morgunfund um heilsueflandi vinnustaði á morgun, fimmtudaginn 28. september, undir yfirskriftinni „Er allt í gulu á þinum vinnustað?“.
Morgunfundurinn verður haldinn hjá embætti landlæknis í Katrínartúni 2 milli kl. 8:30 og 10:00. Fundurinn verður einnig sendur út sem fjarfundur - sjá streymi hér. Morgunfundurinn er öllum opinn en skrá skal þátttöku hér.
Dagskrá
Inngangsorð og kynning á gulum september
Geðrækt á heilsueflandi vinnustað – Inga Berg Gísladóttir
Erindi frá Controlant - Unnur María Birgisdóttir og Auðbjörg Ólafsdóttir
Streitustiginn – Berglind Stefánsdóttir og Guðrún Rakel Eiríksdóttir
Morgunfundurinn er fjórtándi röðinni í fundaröð um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi VIRK, Embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.
Markmið Heilsueflandi vinnustaðar er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.