Eining-Iðja styrkir Velferðarsjóðinn á Eyjafjarðarsvæðinu

"Stjórn Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra sem leggja starfinu lið. Án þessa mikla velvilja í samfélaginu væri ekki hægt að styrkja efnaminni heimili á svæðinu með þeim hætti sem nú er gert. Ykkar stuðningur er ómetanlegur og hver einasta króna skiptir máli."

Á fundi aðalstjórnar Einingar-Iðju í gær, 18. nóvember, var samþykkt að veita Velferðarsjóðnum á Eyjafjarðarsvæðinu 1,2 milljónir króna í styrk.

Neyðin hefur aukist
Í frétt á heimasíðu Velferðarsjóðs segir að fulltrúar sjóðsins hafi séð eftirspurn eftir aðstoð aukast töluvert síðustu mánuði. „Við sjáum að svigrúmið hjá fólki er minna, það þarf minna til að heimilisbókhaldið fari í mínus“ segir Herdís Helgadóttir, formaður stjórnar sjóðsins. Hún segir hópinn sem leitar til sjóðsins eftir aðstoð stækka stöðugt og því miður hafi það verið svo að sjóðurinn hafi ekki getað aðstoðað fólk eins oft eða mikið og æskilegt hefði verið. „Við erum með ákveðnar upphæðir og ákveðinn fjölda skipta en ef vel ætti að vera þyrftum við bæði að hækka upphæðirnar og fjölga skiptunum sem fólk getur sótt aðstoð,“ segir Herdís. „En við úthlutum ekki meiru en því sem við söfnum. Þess vegna er svo mikilvægt að vel gangi núna fyrir jólin, því þetta er sá tími sem við söfnum langmestu.“

Jafnframt segir að sjóðurinn treysti á framlög frá fyrirtækjum og félagasamtökum á svæðinu. Herdís segir velviljann í samfélaginu ómetanlegan og að yfirleitt hafi gengið vel að safna fyrir jólin. Hún bendir þó á að nú hafi allt hækkað og fólk fái minna fyrir peninginn. Því sé afar mikilvægt að nú safnist meira en áður.

Áhersla á peningastyrki
Fyrir jólin eru mörg vön því að gefa jólagjafir undir þar til gert tré, fyrir efnaminni fjölskyldur. Herdís segir það flókið í framkvæmd að deila þeim gjöfum út á sanngjarnan hátt. „Það verða alltaf einhver sem fá draumagjöfina og önnur sem fá lítið sem ekkert sem hentar. Einnig er það ákveðinn umhverfissóðaskapur því við þurfum að opna allar gjafirnar áður en þeim er útdeilt.“ Því vill stjórn sjóðsins beina því til fólks að styrkja frekar með fjárframlögum eða kaupum á velferðarstjörnunni. Fyrir jólin í fyrra voru styrkir við barnafjölskyldur hækkaðir. „Þau sem vilja gera eitthvað táknrænt, til dæmis að kenna börnunum sínum að gera góðverk fyrir jólin, geta keypt velferðarstjörnu sem fallegt tákn um að hafa styrkt þetta mikilvæga málefni fyrir jólin,“ segir Herdís. 

Hver króna skiptir máli
Stjórn Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra sem leggja starfinu lið. Án þessa mikla velvilja í samfélaginu væri ekki hægt að styrkja efnaminni heimili á svæðinu með þeim hætti sem nú er gert. Ykkar stuðningur er ómetanlegur og hver einasta króna skiptir máli.

Fram kemur á heimasíðu sjóðsins að opnað verður fyrir umsóknir um jólaaðstoð miðvikudaginn 20. nóvember. 

Þau sem vilja styrkja jólaaðstoð Velferðarsjóð Eyjafjarðarsvæðis er bent á eftirfarandi söfnunarreikning:

Kt. 651121-0780
Rn. 0302-26-003533