Vert er að benda aftur á að sundlaugin á Illugastöðum í Fnjóskadal er opin og geta allir kíkt þangað í sund í sumar. Sundlaugin er staðsett við orlofsbyggðina á Illugastöðum en er öllum opin. Laugin er útilaug og eru þar tveir heitir pottar og einn kaldur.
Á Facebook síðu byggðarinnar segir að sundlaugin sé opin alla daga í sumar frá kl. 10:30 til 17:30 nema föstudaga. "Svo er aldrei að vita nema að við tökum einhverja smá útúrdúra í sumar t.d. einhverjar kvöldopnanir eða þema daga/kvöld það verður þá auglýst sérstaklega. Hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest í lauginni í sumar " Það er því um að gera að vakta síðuna þeirra til að fylgjast með þessum aukaopnunum.
Opnunartími sumarið 2024
Laugardaga til fimmtudaga 10:30 - 17:30
Lokað á föstudögum.
Gjaldskrá sumarið 2024
Stakt gjald | 10 tíma kort | |||
---|---|---|---|---|
Börn, 6 - 17 ára |
|
400 kr. |
|
3.300 kr. |
Fullorðnir |
|
1.100 kr. |
|
7.700 kr. |
Aldraðir og öryrkjar |
|
500 kr. |
|
3.850 kr. |