Dagsferðin- lagt af stað kl. 9 á laugardaginn

Næsta laugardag stendur Eining-Iðja fyrir dagsferð fyrir félagsmenn. Farið verður um Bárðardal inn í Laugafell og niður í Skagafjörð. Vert er að minna á að rúturnar munu leggja af stað frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 9.

Góð skráning er í ferðina og minnum við á að það þarf að hafa með sér nesti til dagsins, annað en grillmat sem félagið sér um.