Búið að opna sundlaugina á Illugastöðum

Vert er að benda á að búið er að opna sundlaugina á Illugastöðum í Fnjóskadal og geta allir kíkt þangað í sund í sumar. 

Sundlaugin er staðsett við orlofsbyggðina á Illugastöðum en er öllum opin. Laugin er útilaug og eru þar tveir heitir pottar.

Opnunartími sumarið 2023

  • Laugardaga til fimmtudaga 10:30 - 17:30
  • Lokað á föstudögum.

Gjaldskrá sumarið 2023

  Stakt gjald     10 tíma kort

Börn, 6 - 17 ára

 

400 kr.

 

3.000 kr.

Fullorðnir

 

1.000 kr.

 

7.000 kr.

Aldraðir og öryrkjar

 

450 kr.

 

3.500 kr.