Breyting á aksturgjaldi og dagpeningagreiðslum

Noti starfsmaður eigin bifreið í þágu atvinnurekanda ber að greiða fyrir notkun samkvæmt kílómetragjaldi sé ekki samið um annað endurgjald. Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

  • Fyrstu 10.000 km, kr. 141,00 pr. km
  • Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 127,00 pr. km
  • Umfram 20.000 km, kr. 113,00 pr. km
Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið. Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. maí 2023. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2022.
 

Dagpeningar 

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

1. Gisting og fæði í einn sólarhring  kr. 49.500
2. Gisting í einn sólarhring   kr. 34.300
3. Fæði hvern heilan dg, minnst 10 tíma ferðalag    kr. 15.200
4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag  kr. 7.600


Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. maí 2023. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2022.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Fæðiskostnaður er uppreiknaður miðað við breytingar á viðeigandi vísitölu sem útgefin er af Hagstofu Íslands.

Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.