Noti starfsmaður eigin bifreið í þágu atvinnurekanda ber að greiða fyrir notkun samkvæmt kílómetragjaldi sé ekki samið um annað endurgjald. Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana frá 1. október sl. sem hér segir:
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:
1. Gisting og fæði í einn sólarhring | kr. 34.500 |
2. Gisting í einn sólarhring | kr. 28.800 |
3. Fæði hvern heilan dg, minnst 10 tíma ferðalag | kr. 13.600 |
4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag | kr. 6.800 |
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2022. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2022.
Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Viðmið ferðakostnaðarnefndar eru hámarksupphæðir vegna greiðslu slíkra reikninga.