Bleiki dagurinn er í dag

Hann er runninn upp, bleikasti dagur ársins! Á Bleika deginum hvetur Krabbameinsfélagið alla til að vera bleik - fyrir okkur öll, bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.

Á myndinni, sem tekin var fyrr í morgun, má sjá nokkra bleika starfsmenn félagsins á skrifstofunni á Akureyri.

Sjá nánar hér um Bleika daginn