Ávísun á frábært frí

Á orlofsvef félagsins geta félagsmenn keypt ferðaávísun sem tryggir bestu kjörin á gistingu á fjölmörgum hótelum og gistiheimilum um allt land. Nú er líka hægt að nota ferðaávísunina upp í gönguferðir, en samið var við Ferðafélag Íslands, Útivist og Fjallafjör um að taka við Ferðaávísun stéttarfélagana. Félagsmenn njóta sérkjara á völdum ferðum en einnig má nota Ferðaávísun upp í hvaða ferð sem er á vegum þessara fyrirtækja.

Félagsmenn skrá sig inn á orlofsvef Einingar-Iðju og kaupa þar ferðaávísun sem hægt er að nota upp í gönguferðir eða gistingu á tugum hótela og gistiheimila í öllum landsfjórðungum, án þess að festa dagsetningu dvalarinnar. Þeir velja upphæð ávísunarinnar og greiða fyrir. Þeir bóka því næst gistingu á þeim stað sem þeim hugnast en herbergi, þjónusta og verð er breytilegt á milli gististaða. Félagið niðurgreiðir gistinguna um 20% af valinni upphæð. Niðurgreiðslan getur að hámarki verið 15.000 krónur á hverju almanaksári. 

Margt í boði
Í boði er allt frá einfaldri gistingu á litlum gistiheimilum upp í vegleg hótelherbergi með fullri þjónustu og dýrindis morgunverði. Einnig er hægt að velja upphæð að eigin vali, til dæmis 5.000 eða 15.000 krónur, og nota hvar sem er þegar land er lagt undir fót. Ávísunin veitir aðgang að bestu tilboðum þessara hótela og gistiheimila. Valið er þitt.

Ef umrætt hótel eða gistiheimili er fullt, eða ef ferðaáætlunin tekur breytingum þegar nær ferðinni dregur, er hægt að nota ávísunina hjá hvaða samstarfsaðila sem er, hvenær sem gistipláss er laust og með hvaða tilboði sem er. Þannig hafa félagsmönnum verið tryggð bestu hugsanlegu kjör og útilokað að þeir fari á mis við betri tilboð. 

Engin binding og aukið frelsi
Ferðaávísunin er rafræn og er geymd á þínu svæði á orlofsvefnum. Ávísunin er ekki bundin við tilteknar dagsetningar, einstakt gistiheimili, hótel eða hótelkeðju. Jafnframt geta félagsmenn nýtt ávísunina með hvaða sértilboðum sem samstarfsaðilar okkar kunna að bjóða síðar. Ekki er þörf á að fullnýta þá inneign sem félagsmenn eiga í formi ávísunarinnar hjá einu hóteli eða gistiheimili, heldur getur hún nýst á fleiri gististöðum. Ef dýrari gisting er valin en upphaflega stóð til, greiðir félagsmaðurinn einfaldlega mismuninn á staðnum.

Óhætt er að skora á félagsmenn að huga tímanlega að því að panta gistingu, til að auka líkurnar á að herbergi séu laus á gististaðnum.