Átt þú eftir að kjósa? - kosningu lýkur kl. 9 í dag

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning SGS og Sambands íslenskra sveitarfélaga stendur ný yfir. Atkvæðagreiðslan er sameiginleg hjá þeim 18 aðildarfélögum sem eru aðilar að samningnum og lýkur í dag, þriðjudaginn 26. september, kl. 9:00.

Um er að ræða stuttan samning sem þó felur í sér ýmsar jákvæðar breytingar. Hér má skoða glærukynningu frá félaginu um samninginn og jafnframt er kynningarefni aðgengilegt inni á heimasíðu Starfsgreinasambandsins.

Félagið hvetur alla þá sem starfa eftir þessum samningi til að taka afstöðu með því að taka þátt í atkvæðagreiðslunni.