Atkvæðagreiðsla stendur yfir

Nú stendur yfir atkvæðagreiðsla um sáttatillögu ríkissáttasemjara á almenna markaðinum. Eining-Iðja hvetur alla félagsmenn sem vinna á almenna markaðinum að greiða atkvæði og sýna þannig í verki skoðun sína á nýjum kjarasamningi sem gildir í 12 mánuði, frá 1. febrúar 2014.

Kjörfundur stendur yfir dagana 4. og 5. mars og verður á sjö stöðum á félagssvæðinu, þ.e. Akureyri, Dalvíkurbyggð, Ólafsfirði, Siglufirði, Hrísey, Grenivík og Grímsey.

Jafnframt var samþykkt að talning muni fara fram 6. mars, en úrslit á að tilkynna Ríkissáttasemjara og Samtökum atvinnulífsins fyrir kl. 12:00 þann 7. mars nk.

Nánar um kjörfundi á hverjum stað dagana 4. og 5. mars:

  • Akureyri: Skrifstofa félagsins milli kl. 8 og 20
  • Dalvík: Skrifstofa félagsins milli kl. 9 og 17
  • Grenivík: Hjá Róbert svæðisfulltrúa milli kl. 9 og 17
  • Grímsey: Hjá Önnu Maríu Sigvaldadóttur milli kl. 9 og 17
  • Hrísey: Hjá Guðrúnu svæðisfulltrúa milli kl. 9 og 17
  • Ólafsfjörður: Skrifstofa Sjómannafélags Ólafsfjarðar milli kl. 9 og 17
  • Siglufjörður: Skrifstofa félagsins milli kl. 9 og 17

Helstu atriði nýja samningsins eru:

  • Eingreiðsla vegna janúar 2014, kr. 14.600
  • Þeir sem taka mið af launatöflu hækka um 4,4 % - 5 %
  • Þeir sem taka laun á bilinu 230.000 kr. - 285.000 kr. 2,8 % - 4,5 %
  • Laun yfir 285.000 kr. hækka um 2,8 %
  • Allir kjaratengdir liðir hækka um 2,8 %
  • Desemberuppbót 2014 hækkar í kr. 73.600
  • Orlofsuppbót 2014 hækkar í kr. 39.500
  • Tekjutrygging skv. samningi fyrir árið 2014 verður kr. 214.000

Sáttatillagan byggir á eldra samningstilboði SA frá 21. desember 2013 en nánari upplýsingar má nálgast í tveimur kynningarbæklingum sem félagið útbjó. Þessi kynnti samning sem skrifað var undir í desember, en þessi kynnir viðbót við þann samning. Í honum eru hærri orlofs- og desemberuppbætur og eingreiðsla vegna janúarmánaðar.