Elsa Hrönn áfram í stjórn ASÍ-UNG

ASÍ-UNG, hreyfing ungs fólks innan Alþýðusambands Íslands, kom saman til fundar á Hellu fimmtudaginn 7. nóvember sl. Á heimasíðu ASÍ segir að þrátt fyrir íslenskt veður og erfiðar flugsamgöngur sótti góður hópur fulltrúa víðast hvar af landinu þetta 10. þing ASÍ-UNG. Yngsti gestur þingsins var eins mánaðar gamall. 

Reynsluboltar gáfu góð ráð
Helsta málefni þingsins var efling ungs fólks til að hafa áhrif. Gestir voru Gundega Jaunlinina, varaformaður Hlífar, Birkir Snær Guðjónsson, varaformaður AFLs og Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður RSÍ. Gestir sögðu þingfulltrúum frá reynslu sinni af verkalýðsmálum og hvernig vegferð þeirra hafi verið innan hreyfingarinnar til dagsins í dag. Ungu fólki voru gefin góð ráð og það hvatt til áhrifa enda mikilvægt að raddir ungs fólks heyrist í samfélaginu. 

Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambandsins, ávarpaði þingið. Hvatti hann unga fólkið til dáða og sagði mikilvægt að það léti til sín taka innan hreyfingarinnar og í samfélaginu öllu. 

Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir, sem situr í stjórn Matvæla- og þjónustudeildar Einingar-Iðju, var endurkjörin í stjórn ASÍ-UNG á þinginu, en stjórn ASÍ-UNG árin 2024 til 2025 er skipuð eftirfarandi:

  • Ástþór Jón Ragnheiðarson
  • Ásdís Helga Jóhannsdóttir
  • Birgitta Ragnarsdóttir
  • Þorvarður Bergmann Kjartansson
  • Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir
  • Guðmunda Steina Jósefsdóttir
  • Andri Ólafsson
  • Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir
  • Inga Fanney Rúnarsdóttir

Varamenn:

  • Mateusz Gabríel K. Róbertsson
  • Svandís Dóra Jónsdóttir
  • Elín Ósk Sigurðardóttir

Ástþór áfram starfandi formaður
Stjórn skipar með sér verkum samkvæmt samþykktum ASÍ-UNG og ákvað nýkjörin stjórn að Ástþór Jón Ragnheiðarson yrði áfram starfandi formaður og Ásdís Helga Jóhannsdóttir áfram starfandi varaformaður.