Á heimasíðu ASÍ segir að um 60% þjóðarinnar telja áhrif innflytjenda á íslenskt efnahagslíf vera jákvæð.
Þetta kemur fram í nýrri þjóðmálakönnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Alþýðusamband Íslands (ASÍ).
Spurt var: Telur þú að innflytjendur hafi jákvæð eða neikvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf?
Alls kváðust 21% aðspurða telja áhrifin mjög jákvæð og 39% sögðu þau frekar jákvæð. Um 18% töldu þau frekar (12%) eða mjög neikvæð (6%).
Þá tóku 22% ekki beina afstöðu.