Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti ASÍ, afhenti Rauða krossinum á Íslandi styrk upp á 800 þúsund krónur í gær. Styrknum verður einkum varið í að efla hjálparsíma Rauða krossins 1717. Björg Kjartansdóttir veitti styrknum viðtöku fyrir hönd RKÍ.
Hjálparsími Rauða krossins 1717 og netspjall 1717.is styður við fólk sem á í erfiðleikum, en þar er hægt að leita sér aðstoðar með viðkvæm vandamál af öllum toga. Mikilvægi 1717 er sjaldan meira en einmitt yfir hátíðarnar þegar álagið á Hjálparsímanum er sem mest og er styrkurinn því kærkominn.
Árlega hafa að jafnaði um 15 þúsund erindi borist til 1717, en þeim hefur þó fjölgað umtalsvert síðastliðin ár. Þjálfaðir og reynslumiklir sjálfboðaliðar á öllum aldri svara þeim erindum sem berast. Hjálparsíminn veitir sálfélagslegan stuðning, ráðgjöf og hlustun, auk þess sem þau úrræði sem í boði eru á Íslandi, í hverjum málaflokki, eru kynnt.