Á vef ASÍ segir að það er rangt að launahlutfall á Íslandi sé hið hæsta sem þekkist og að laun hér á landi hafi hækkað umfram framleiðnivöxt. Hið rétta er að hlutfall launa af verðmætasköpun er sambærilegt við nágrannalönd og lægra en í sex aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD).
Þetta er á meðal þess sem fram kemur í ítarlegri greinargerð um launaþróun og framleiðni á Íslandi sem Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ), lagði fram á fundi Þjóðhagsráðs í liðinni viku.
Launahlutfall er hefðbundinn mælikvarði á skiptingu verðmætasköpunar milli launafólks og fjármagnseigenda. Það mælir hversu hátt hlutfall verðmætasköpunar fer til launafólks. Í greinargerð ASÍ er fjallað um þróun launahlutfalls hér á landi og kemur m.a. fram að það lækkaði mikið í kjölfar hruns fjarmálakerfisins haustið 2008. Frá aldamótum hafa laun í einkageira þróast í takt við framleiðni. Launahlutfallið er þó enn lægra en það var fyrir hrunið.