ASÍ - Páskaeggin ódýrust í Bónus og Krónunni

Bónus var oftast með lægsta verð á páskaeggjum í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var þann 28. mars, í 28 af 32 tilvikum. Krónan var með lægsta verðið í fjórum tilvikum og verð á öðum páskaeggjum í versluninni var einni krónu hærra en verð hjá Bónus.

Krónan og Bónus voru með lægsta meðalverðið á páskaeggjum en Fjarðarkaup og Nettó með næst lægsta meðalverðið sem var að meðaltali um 5% hærra en verð í Krónunni og Bónus.

Iceland var oftast með hæsta verðið á páskaeggjum, í 19 tilvikum af 32 og Hagkaup í 14 tilvikum en verð í báðum verslunum var um 17% hærra en lægsta verð.

Heimkaup var með hæsta meðalverðið sem var 27% hærra en lægsta verð en einungis níu páskaegg af þeim sem voru í könnuninni fengust í versluninni.  

Sjá nánar á heimasíðu Verðlagseftirlits ASÍ