ASÍ og BSRB taka á móti formönnum flokka í framboði til alþingiskosninga.

Fundurinn verður einnig í beinu streymi.

ASÍ og BSRB taka á móti formönnum flokka í framboði til alþingiskosninga á Hilton Nordica, mánudaginn 18. nóvember nk. milli klukkan 17:00  og 19:00.

Yfirskrift fundarins er Samfélag á krossgötum, en þar sitja formenn allra flokka í framboði á landsvísu fyrir svörum um stefnu í málum sem helst varða afkomu og lífsgæði launafólks í landinu. Þau verða knúin svara um þeirra sýn á hvernig samfélag þau vilja byggja, og fyrir hvern.

Pallborðinu stýra Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.