ASÍ, nýtt mánaðaryfirlit – Hagvaxtaraukinn virkjast

Landsframleiðsla leiðrétt fyrir mannfjölda, þ.e. hagvöxtur á mann jókst um 2,5% milli ára. Að jafnaði voru landsmenn 372 þúsund talsins á síðasta ári og fjölgaði um 6500 milli ára, eða 1,8%. Það að hagvöxtur á mann hafi verið meira en 1% hefur þá þýðingu að forsendunefnd kjarasamninga mun koma saman til að ræða greiðslu hagvaxtarauka. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýju mánaðaryfirliti stefnumótunar og greiningar. Þar má einnig lesa um verðbólgumælingu febrúar mánaðar, samantekt á útgreiðslu séreignarsparnaðar í heimsfaraldri og jöfnunaráhrifum tekjuskattkerfisins.

Mánaðaryfirlitið fyrir febrúar 2022 má nálgast hér.

4,3% hagvöxtur á síðasta ári

Hagstofan hefur birt tölur um landsframleiðslu síðasta árs. Hagvöxtur mældist 4,3% á síðasta ári eftir 7,1% samdrátt árið 2020. Þjóðarútgjöld jukust kröftuglega, um 7,2% sem skýrðist fyrst og fremst af 7,6% vexti einkaneyslunnar og einnig af 13,6% aukningu í fjármunamyndun. Samneysla jókst um 1,8%. Sé fjármunamyndun skoðuð nánar, má sjá að veruleg aukning var í fjárfestingu atvinnuveganna, eða 23% ásamt því fjárfesting hins opinbera jókst um 12,4%. Athygli vekur að íbúðafjárfesting dróst saman milli ára, um 4,4% en er þó töluverð í sögulegu samhengi.

Sjá nánar hér