Finnbjörn A. Hermannsson skrifar:
Yfirlýsingar fjármálaráðherra og utanríkisráðherra þess efnis að náttúruhamfarir í Grindavík muni hafa áhrif á getu stjórnvalda til að koma til móts við kröfur launafólks um aðkomu ríkisins að kjaraviðræðum hafa að vonum vakið talsverða furðu.
Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í sjónvarpsviðtali mánudaginn 22. janúar að uppi væru „mjög háværar kröfur” um að ríkið legði mikla fjármuni í tilfærslukerfin svonefndu. Þegar ríkið stæði frammi fyrir svo stóru verkefni sem „Grindavíkurmálið” væri hefði það áhrif á getu ríkissjóðs til að koma til móts við kröfur annarra. „Það væri óskynsamlegt af öllum aðilum að ætlast til þess að þeir yrðu teknir út úr því stóra samhengi sem við öll erum föst í,“ sagði ráðherrann.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, tók undir þessi orð hans daginn eftir og kvaðst telja „blasa við” að náttúruhamfarir í Grindavík og aðstoð við íbúa þar hefðu áhrif á „allt annað sem [ríkisstjórnin] gerði” og undarlegt væri ef einhverir „ætluðu að vera ósammála því.”
„Stóra samhengið”
Vegna þessara yfirlýsinga ráðherranna er mikilvægt að fram komi að verkalýðshreyfingin hefur aldrei krafist þess að hún verði tekin út úr því „stóra samhengi” sem utanríkisráðherra gerði að umtalsefni.
Hið „stóra samhengi” sem blasir við íslensku launafólki er að á síðustu árum hafa stjórnvöld skipulega eyðilagt tilfærslukerfin, sem eru tæki velferðarsamfélagsins til að létta undir með almenningi á krefjandi tímum, til dæmis þegar fólk kemur sér þaki yfir höfuð eða eignast börn. Frá árinu 1995 hefur meðalfjölskylda tapað um 40.000 krónum að núvirði á mánuði í samanlagðar barna- og vaxtabætur. Tillögur verkalýðshreyfingarinnar miða að því endurheimta það sem stjórnvöld hafa tekið af launafólki.
Það skiptir einnig verulegu máli í „stóra samhenginu” að verkalýðshreyfingin hefur unnið ítarlegar tillögur um endurreisn tilfærslukerfa vaxta-, húsnæðis- og barnabóta og hvernig fjármagna megi þær löngu tímabæru umbætur. Hér skulu nefndar nokkrar helstu tillögur hvað fjármögnun varðar:
Heilbrigt og réttlátt skattkerfi
Líkt og þessar tillögur bera greinilega með sér er hugsunin ekki sú að auka skattheimtu á launafólk í landinu. Hún er nú þegar síhækkandi og óhófleg, sérstaklega hvað lægstu launin varðar og ber forgangsröðun stjórnvalda ekki fagurt vitni. Hér eru á hinn bóginn lögð drög að heilbrigðara og réttlátara skattkerfi þar sem auknar byrðar eru að sönnu lagðar á stórfyrirtæki og fjármagnseigendur. Í því efni skal minnt á að hagnaður útgerðar árin 2020 til 2022 var samtals rúmir 160 milljarðar króna og arðgreiðslur voru í samræmi við það. Um bankaskatt má nefna að hagnaður þeirra stærstu var samtals um 67 milljarðar króna árið 2022 og þar munaði mestu, venju samkvæmt, um vaxtatekjur þessara fyrirtækja sem rót eiga í vaxtamuni er kemur af fullum þunga niður á launafólk.
Við skulum jafnframt hafa í huga að íslenskur fákeppnismarkaður er gríðarlega kostnaðarsamur fyrir launafólk og gróðinn ratar í vasa hinna fáu. Til að sporna gegn þessu þarf að reka öflugt samkeppniseftirlit og skattleggja ofsagróða. Verkalýðshreyfingin hefur hafnað því að launafólk verði eitt látið bera byrðarnar af erfiðu efnahagsástandi sem það á enga sök á. Hreyfingin hafnar gjaldskrárhækkunum, aukinni gjaldheimtu, almennum skattahækkunum og niðurskurði í mennta-, heilbrigðis- og velferðarkerfinu.
Samhjálp
Því verður ekki trúað að forystumenn Sjálfstæðisflokksins ætli að halda þeim málflutningi á lofti að réttmætar kröfur launafólks, sem lúta ekki síst að stuðningi sem þessir sömu ráðherrar hafa svipt almenningi, vinni gegn því að samfélagið geti komið Grindvíkingum til hjálpar á þessum neyðartímum. Líkt og ég hef hér sýnt fram á gerir verkalýðshreyfingin ráð fyrir því að breytt skattheimta standi undir fjármögnun nauðsynlegra samfélagsumbóta. Óhugsandi er að forystumenn í stjórnmálum landsins horfi til vandaðrar kjarabaráttu launafólks á þann veg að sanngjarnar kröfur séu fallnar til að skerða samheldni þjóðarinnar þegar náttúruhamfarir ríða yfir.
Höfundur er forseti Alþýðusambands Íslands.