Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) fordæmir þá útvistun starfa ræstingafólks bæði hjá hinu opinbera og á almennum markaði sem skapað hefur eins konar þrælastétt í íslensku samfélagi. Miðstjórn vekur athygli á að ríki og sveitarfélög leiða þessa aðför að láglaunafólki og telur yfirgengilegan þann tvískinnung stjórnvalda að slá sig til riddara sem sérstakar hetjur kvenfrelsis og fjölmenningar á sama tíma og hin pólitíska forréttindastétt stuðlar að jaðarsetningu og fátækt viðkvæmustu hópa á vinnumarkaði.
Fyrr í október var enn skýrt frá hópuppsögnum og útvistun starfa; að þessu sinni ræstingafólks og starfsmanna í þvottahúsi Grundarheimilanna. Löngum voru þessi láglaunastörf nær eingöngu í höndum kvenna en í seinni tíð hefur færst í vöxt að karlar af erlendum uppruna sinni einnig slíkri þjónustu. Miðstjórn telur það dapurlega samfélagsmynd að fyrirtæki og stofnanir sem sinna börnum og öldruðum skuli telja sjálfsagt að knýja fram sparnað í rekstri með því að þvinga láglaunafólk til að sætta sig við enn verri kjör og enn meira álag. Miðstjórn telur að áleitnar spurningar hljóti að vakna um siðferðisstig þess samfélags sem samþykkir svo smánarlega framgöngu og brenglaða forgangsröðun.
Í nýrri könnun Vörðu - rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins er að finna sláandi upplýsingar um lífskjör og líðan starfsfólks við ræstingar. Sú mynd sem þar birtist er áfellisdómur yfir samfélagi okkar og opinberar hræsni og sinnuleysi um kjör verkafólks. Starfsfólk við ræstingar deilir hvorki kjörum né starfsaðstöðu með fólki á sama vinnustað og er því skipulega jaðarsett um leið og það er dæmt til fátæktar ásamt börnum sínum
Jafnframt vekur miðstjórn athygli á því samfélagsmeini sem svonefndar „starfsmannaleigur” hafa reynst þar sem réttindi verkafólks eru fótum troðin og skapað hefur verið umhverfi sem býður heim hættu á misneytingu og vinnumansali.
Miðstjórn ASÍ ályktar að taka beri sérstaklega á útvistun starfa og kjörum ræstingafólks í komandi kjarasamningum. Siðlausa framgöngu gagnvart viðkvæmustu hópum á vinnumarkaði verður að stöðva.