Ársreikningur Stapa 2022

Á heimasíðu Stapa segir að stjórn Stapa lífeyrissjóðs hafi staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2022. Um síðustu áramót var hrein eign til greiðslu lífeyris um 349 milljarðar króna og lækkaði um u.þ.b. 8 milljarða króna frá fyrra ári.

Ávöxtun eigna Stapa árið 2022 var sú slakasta frá árinu 2008 eða sem nemur -12,6% raunávöxtun. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu fimm ár er um 3,7%.

Greiddir voru um 9,1 milljarður króna í lífeyri úr tryggingadeild sjóðsins til um 12.000 lífeyrisþega. Voru þetta um 14,9% hærri greiðslur en árið á undan en á sama tíma fjölgaði lífeyrisþegum um 3,6%.

Alls greiddu rúmlega 22.000 sjóðfélagar hjá rúmlega 3.700 launagreiðendum iðgjöld til tryggingadeildar á árinu en iðgjöld námu um 15,8 milljörðum króna og hækkuðu um 14,6% á milli ára. Fjöldi virkra sjóðfélaga sem greiddu iðgjöld í mánuði hverjum var um 15.600.

Hrein eign séreignardeildar var 7.732 milljónir króna og lækkaði um 8,2% frá fyrra ári. Séreignardeildin býður upp þrjú ávöxtunarsöfn, Innlána safnið, Varfærna safnið og Áræðna safnið og nam hrein raunávöxtun safnanna -6,7%, -16,0% og -17,5% á árinu. Hrein eign tilgreindrar séreignardeildar nam 548 milljónum króna í lok árs.

Ársreikninginn í heild sinni má finna hér