Ársfundur VIRK 2022

Ársfundur VIRK verður haldinn á morgun, þriðjudaginn 26. apríl, í salnum Háteigi á Grand Hótel Reykjavík milli kl. 13.00 og 16.00.

Dagskrá

Ávarp
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra
Starfsemi VIRK
Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK
Heilsa, lífskjör og félagslegur jöfnuður
Svandís Nína Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá VIRK
Reynslusaga þjónustuþega VIRK
Reynslusaga stjórnanda úr atvinnulífinu
Hefðbundin ársfundarstörf samkvæmt skipulagskrá:
- Skýrsla stjórnar
Ársreikningur VIRK 2021 kynntur og borinn upp til samþykktar
- Tilkynning um skipan stjórnar
- Kosning endurskoðenda
- Önnur mál

Ársfundurinn er öllum opinn en meðlimir fulltrúaráðs VIRK hafa einir atkvæðisrétt.

Skrá skal þátttöku hér.