Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 1. júní, í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri kl. 14:00. Félagið á rétt á að senda 40 fulltrúa á fundinn, en þeir voru kosnir á aðalfundi félagsins sem haldinn var 6. apríl sl.
Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og segir á heimasíðu Stapa að stjórn sjóðsins vonast eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta. Sjóðfélagar eiga kost á því að fylgjast með fundinum í vefútsendingu. Skráning vegna vefútsendingar er hér.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Stjórn Stapa lífeyrissjóðs leggur til að breytingar verði gerðar á samþykktum sjóðsins á ársfundi hans. Samkvæmt grein 10.1 í samþykktum sjóðsins skal senda aðildarfélögum tillögurnar minnst tveimur vikum fyrir ársfund. Tillögurnar hafa verið sendar aðildarfélögum ásamt greinagerð.
Önnur gögn má finna hér: