Ársfundur Stapa 2023

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 3. maí 2023, í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri kl. 14:00. Félagið á rétt á að senda 41 fulltrúa á fundinn. Kosning þessara fulltrúa fer fram árlega á aðalfundi félagsins.

Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og segir á heimasíðu Stapa að stjórn sjóðsins vonist eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs leggur til að breytingar verði gerðar á samþykktum sjóðsins á ársfundi hans.

Samkvæmt grein 10.1 í samþykktum sjóðsins skal senda aðildarfélögum tillögurnar minnst tveimur vikum fyrir ársfund. Greinargerð með samþykktarbreytingum og uppfærður Viðauki A hafa verið sendar aðildarfélögum.

Sjóðfélagar eiga kost á því að fylgjast með fundinum í vefútsendingu. Skráning vegna vefútsendingar er hér.

Önnur gögn má finna hér:
Ársreikningur Stapa 2022
Ársskýrsla Stapa 2022
Starfskjarastefna

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Setning ársfundar
  2. Skýrsla stjórnar, kynning og afgreiðsla ársreiknings og tryggingafræðilegt mat
  3. Fjárfestingarstefna sjóðsins
  4. Hluthafastefna sjóðsins
  5. Breytingar á samþykktum
  6. Skipan stjórnar
  7. Starfskjarastefna
  8. Kosning löggilts endurskoðanda
  9. Laun stjórnar
  10. Nefnd um laun stjórnar
  11. Önnur mál