Í síðustu viku gerði Verðlagseftirlit ASÍ verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 29 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið, en frá 1. nóvember er löglegt að aka um á nagladekkjum.
Mestur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti á jeppa (t.d. Mitshubishi)
með 18" álfelgum (265/60R18) sem var ódýrust á 7.157 kr. hjá Bifreiðaverkstæði S.B á Ísafirði en dýrust á 12.980
kr. hjá N1, verðmunurinn var 5.823 kr. eða 81%. Fyrir stálfelgu af sömu stærð er þjónustan ódýrust hjá
Bifreiðaverkstæði S.B. á Ísafirði á 7.157 kr., en dýrust á 11.800 kr. hjá Kaldasel verðmunurinn var 4.643 kr. eða 65%.
Minnstur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti undir smábíl, minni meðalbíl og meðalbíl á 14,
15 og 16" stálfelgu (175/65R14, 195/65R15 og 205/55R16), sem var ódýrust á 4.990 kr. hjá Dekkjahúsinu Kópavogi, en dýrust á 6.950 kr.
hjá Kletti, verðmunurinn var 1.960 kr. eða 39%. Fyrir 14 og 15" álfelgu er þjónustan ódýrust á 4.990 kr. hjá Dekkjahúsinu en
dýrust á 7.590 kr. hjá N1, verðmunurinn var 2.600 kr. eða 52%. Fyrir 16" álfelgu er þjónustan ódýrust á 4.990 kr. hjá
Dekkjahúsinu en dýrust á 7.980 kr. hjá N1, verðmunurinn var 2.990 kr. eða 60%.
Skipting, umfelgun og jafnvægisstilling fyrir jeppling (t.d. Toyota Rav) á 16" álfelgum (225/70R16) var ódýrust á 5.990 kr. hjá Dekkjahúsinu
Kópavogi en dýrust á 9.780 kr. hjá N1, verðmunurinn var 3.790 kr. eða 63%. Fyrir bíl með stálfelgu af sömu stærð var
þjónustan ódýrust á 5.990 kr. hjá Dekkjahúsinu en dýrust á 8.900 kr. hjá Kletti, verðmunurinn var 2.910 eða
49%.
12 hjólbarðaverkstæði með sama verð og í fyrra
Þegar verð fyrir fyrrgreinda þjónustu hjólbarðaverkstæða er borin saman við verðið í fyrra kemur í ljós að tólf
þeirra hafa ekki hækkað hjá sér verðið á þjónustu við dekkjaskipti á meðalbíl með 16" álfelgu (205/55R16)
síðan í október 2012. Mesta hækkunin var hjá Gúmmívinnustofunni SP dekk 19% og þar á eftir kom hækkun hjá Vöku upp
á 11%, einnig hefur verðið hækkað hjá Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns og Kletti um 9%.
Sjá nánar niðurstöður í töflu.
Max 1, Dekkjahöllin, Pústþjónusta BJB, Nesdekk, Gúmmívinnslan, Hjólbarðaþjónusta Magnúsar, Bílaverið,
Bílaverkstæði Austurlands, Höldur Dekkjaverkstæði, Vélrás, Bifreiðaverkstæði Grafarvogs, Smur, bón og dekkjaþjónustan
gerðu verðlagseftirlitinu ókleift að framkvæma verðkönnun.
Kannað var verð á þjónustu við dekkjaskiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu á álfelgum og stálfelgum af stærðum 14,15, 16 og
18" á 29 hjólbarðaverkstæðum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og
Selfossi. Verðin í könnuninni eru án afsláttar en verkstæðin bjóða upp á margskonar afsætti t.d. FÍB, eldri borgara og
staðgreiðslu, viðskiptavinir eru því hvattir til að spyrja um afslátt.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð á þjónustu að ræða en ekki var lagt mat á gæði eða þjónustu
söluaðila.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.