Aðalfundur orlofsbyggðarinnar Illugastaða

Í gær, þriðjudaginn 25. apríl 2023, fór fram á Illugastöðum aðalfundur orlofsbyggðarinnar Illugastaða. Þar fóru fram venjuleg aðalfundarstörf og flutti Björn Snæbjörnsson, formaður byggðarinnar, skýrslu stjórnar og fór yfir ársreikningana. 

Í lok skýrslu þakkaði Björn öllu því frábæra starfsfólki svæðisins fyrir góð störf á árinu og einnig húseigendum fyrir samstarfið. Stjórnarmönnum fyrir samheldnina og áhugann á að gera byggðina sem glæsilegasta. Megi byggðinni farnast vel í framtíðinni og öllum sem þar munu starfa eða dvelja um lengri eða skemmri tíma.“

Tvær breytingar urðu á stjórn byggðarinnar á fundinum, en vitað var að formaður og ritari stjórnar þeir Björn Snæbjörnsson og Sveinn Ingvason myndu ekki gefa kost á sér á ný. Báðir búnir að sitja í stjórn í mjög langan tíma, Björn sem formaður hennar frá 2015 og meðstjórnandi þar áður og Sveinn í rúm 20 ár, öll sem ritari og fengu þeir þakkir fyrir góð störf í þágu orlofsbyggðarinnar.

Núverandi stjórn orlofsbyggðarinnar skipa: Tryggvi Jóhannsson formaður frá Einingu-Iðju, Helgi Sveinbjörn Jóhannsson varaformaður frá FVSA, Jón Þórðarson ritari frá Eflingu, Jóhann Rúnar Sigurðsson frá FMA og Anna Júlíusdóttir frá Einingu-Iðju. Varamenn í stjórn eru Þorkell Kolbeins frá AFLI starfsgreinafélagi og Ásgrímur Örn Hallgrímsson frá Einingu-Iðju.

Eining-Iðja á 14 hús í byggðinni, en í byggðinni eru alls 31 hús. 

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá Tryggva, nýjan formann, Orlofsbyggðarinnar standa á milli Sveins og Björns sem voru að hætta í stjórn byggðarinnar

Aðalfundur Orlofsbyggðarinnar Illugastaða 2023