Í dag, þriðjudaginn 16. apríl 2024, fer fram aðalfundur Einingar-Iðju. Fundurinn hefst kl. 18:30 og verður á Hótel KEA / Múlabergi á Akureyri.
Eins og áður þá er boðið upp á akstur til Akureyrar. Skráning í rútu, sem fer frá Fjallabyggð fer fram í síma 460 3600. Skráningu lýkur kl. 13 í dag.
- Siglufjörður, rúta kl. 17:00, frá skrifstofu félagsins.
- Ólafsfjörður, rúta kl. 17:15, frá Tjarnarborg.
- Dalvík, rúta kl. 17:30, frá skrifstofu félagsins.
- Sameinast verður í bíla frá Grenivík og Hrísey.
- Heyrið í svæðisfulltrúa eða varasvæðisfulltrúa.
Félagsfólk, fjölmennum á fundinn! ATHUGIÐ! fundurinn mun hefjast einni klst. fyrr en síðustu ár.
Veitingar í boði
Dagskrá
- Venjuleg aðalfundarstörf
- Lagabreytingar
- Kosning fulltrúa á ársfund Stapa lífeyrissjóðs
- Önnur mál.