Aðalfundur Einingar-Iðju stendur nú yfir

Nú er Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, að fara yfir skýrslu stjórnar í síðasta sinn þar sem h…
Nú er Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, að fara yfir skýrslu stjórnar í síðasta sinn þar sem hann mun láta af formennsku síðar í kvöld.

Aðalfundur félagsins stendur nú yfir í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Nú er Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, að flytja skýrslu stjórnar í síðasta sinn þar sem hann mun láta af formennsku síðar í kvöld. Hann fjallaði m.a. um mikilvægi trúnaðarmanna í starfi félagsins þar sem hann sagði. ,,Það að hafa öflugt trúnaðarmannakerfi er gullskista hvers félags, trúnaðarmenn eru augu félagsins á hverjum vinnustað og fylgist með að allt sé í lagi er varðar réttindi og skyldur starfsfólks. Við höfum lagt mikið upp úr því að trúnaðarmenn sæki námskeið til að efla sig í hinu dýrmæta hlutverki sem trúnaðarmaður. Margir atvinnurekendur hafa sagt við mig að góður trúnaðarmaður sé gulls ígildi á vinnustað, ekki meint svo að hann sé að samþykkja allt sem hans yfirmaður segir heldur hefur kynnt sér málin og veit hvað er rétt og passar þannig upp á sína vinnufélaga. Svo eru til aðrir atvinnurekendur sem gera í því að hafa ekki trúnaðarmann á sínum vinnustöðum, ætli það sé hræðsla um að þeir verði nappaðir á einhverju ólöglegu eða hvað?
Við þessa atvinnurekendur segi ég, eru þið að fela eitthvað? ef svo er þá mun það fréttast og mun hafa sínar afleiðingar fyrir viðkomandi því að við sofum ekki á verðinum, upp koma svik um síðir. Af hverju er mér svona tíðrætt um trúnaðarmennina og þeirra kraft og þor. Það er vegna þess að í þau 42 ár sem ég hef starfað að verkalýðsmálum eru það trúnaðarmennirnir sem hafa og eru drifkrafturinn í félagi eins og Einingu-Iðju."

Næst mun Hermann Brynjarsson, frá endurskoðunarfyrirtækinu Enor ehf., fara yfir ársreikning Einingar-Iðju fyrir árið 2022.

Nánar verður sagt frá fundinum á heimasíðu félagsins næstu daga.